mánudagur, desember 01, 2003

Heimasíðuskil 

Núna er 1.des runnin upp og allir eiga að vera búnir með síðuna sína. Ég er búin með mína en það er alltaf hægt að gera meira og meira í rauninni er maður aldrei búin, en ég ætla að stoppa núna. Það er talsvert síðan að ég kláraði en samt í gær fór ég að bæta meiru inná síðuna. Hægt er að sjá afraksturinn hér.

mánudagur, nóvember 24, 2003

Skilatími 

Það er mjög mikið að gera í náminu. Lokaskil í nær öllum áföngum og nánast allt sett á sama tímann. Þannig að það gefst nú ekki mikill tími til þess að vera á blogginu og skrifa í dagbók. Ég var að skila tveimur verkefnum í dag og í kvöld og held að það sé komin tími að fara að hvíla sig svo að maður hafi orku í hin verkefnin á morgun þegar maður er búinn að kenna. Ég er að leggja lokahönd á heimasíðuna mína þannig að á næstu dögum má búast við að hún fari að fá sig endalega mynd. Læt þetta nægja í bili.

miðvikudagur, nóvember 19, 2003

Annarlok 

Núna er fyrsta önnin búin í skólanum og búið að tala við alla foreldra um stöðu nemendanna. Það er alltaf gott þegar þetta er búið og hægt að fara skella sér í næstu önn. Það styttist líka í það önnin í kennó sé að klárast og fullt af verkefna skilum eru í lok mánaðarins svo það er nóg að gera á öllum vígstöðum. Ég er farin að hlakka til þega vika af desember er búinn og þá er hægt að fara í jólafrí í náminu.

fimmtudagur, nóvember 13, 2003

Tíminn líður hratt 

Ég er búinn að vera með dóttir mína í rannsóknum í Reykjavík svo það er lítill tími í lærdóm á meðan, en svona er þetta nú bara. Ég hef lítið prófað af spjalli á netinu eins og MSN eða þess háttar mér finnst alltaf best að spjalla í síma eða auglitis til auglitis við fólk.

sunnudagur, nóvember 09, 2003

Sunnudagur til hvíldar 

Það er sunnudagur í dag og ég hef bara verið í því að taka á móti gestum og gefa þeim að borða. Það er alltaf gaman að fá matargesti og spjalla saman um daginn og veginn. Ég ákvað að fara aðeins á netið áður en haldið væri í fjósið og kýrnar mjólkaðar. Það styttist óðum í jólin og nóvember er mjög fljótur að líða. Mér fannst vera 1. nóvember í gær en það er kominn 9.nóvember. Tíminn líður alltof hratt. Núna eru annarskipti í skólanum og maður hefur verið að fara yfir próf og svoleiðis og síðan verða foreldraviðtöl á föstudaginn og nemendur fá afhentar einkunnir sínar. Það er alltaf svolítið púsluspil að raða niður viðtalstímum fyrir foreldra, því að þeir þurfa að fá sér frí í vinnunni og maður reynir eins og maður getur að koma til móts við alla eftir bestu getu.

laugardagur, nóvember 08, 2003

Laugadagur til lukku 

Ég hef verið að vinna í heimasíðunni síðustu daga og er að verða bjartsýnni á námið núna en ég var. Power point verkefnið mitt er ekki það sama og upphaflega átti að vera. En vonandi kemur það ekki að sök. Þið getið skoðað afraksturinn hér og vonandi verði þið einhvers vísari. Að vísu á eftir að mæta ýmislegt en það kemur með tíð og tíma má ekki gleyma að sinna öðrum greinum.

mánudagur, nóvember 03, 2003

allt í stressi 

Því miður hefur allt gengið á afturfótunum hjá mér. Ég ætlaði að nota helgina til að vinna upp verkefni sem væru komin í eindaga en þá þurfti tölvan að bila og það leit ekki vel út. Útlit var á að allt væri glatað af harðadisknum og hann ónýtur en sem betur fer tókst að laga það í dag og vonandi get ég farið að sinna mínum málum. Ég á power point verkefnið til í tölvunni en það er eftir að koma því á netið sem verður í þessari viku ásamt skólaheimsóknarverkefninu.

fimmtudagur, október 30, 2003

Loksins komin tími til að skrifa 

Ennþá líður tíminn og lítið sem ekkert gerist hjá mér. Ég hef ekkert að segja núna. Heldur reyni að einbeita mér í verkefnunum sem á að skila núna 1.nóv.

mánudagur, október 20, 2003

Engin Tími 

Það er alveg ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða og verkefnin hrannast upp. Ég er alltaf búinn að koma mér í svo mikla vinnu að námið situr á hakanum, því maður vill nú ekki láta börnin sín sitja á hakanum alltaf. En svona er þetta nú bara og koma tímar og koma ráð.

mánudagur, október 13, 2003

Vefsíða 

Loksins tókst mér að gera eitthvað í heimasíðunni minni, en ég er búin að vera í vandræðum að komast inn í það sem ég var búin að gera í Kennó í staðbundnulotunni. En núna er þetta vonandi að koma og um að gera að vera duglegur að vinna í þessu. Gerði talsvert í kvöld og þið getið skoðað afraksturinn hér ef þið hafið áhuga á.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?